Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varð ekki um sel – „Við urðum að fara í smá áhættuleik“

Vegfarendum um Vatnsskarð eystra milli Borgarfjarðar eystri og Egilsstaða brá heldur betur í brún þegar þau sáu að villtur selur hafði komið sér fyrir á miðjum veginum. Fólkinu varð ekki um sel en með samvinnu tókst því að koma honum í nærliggjandi fljót.„Þetta var svolítið öðruvísi verkefni,“ segir Erlendur Ágúst Einarsson, bóndi á Unaósi. Selurinn hafi líklega orðið viðskila við stofninn og verið áttavilltur. Hann hafi verið allt að 500 metrum frá fljótinu.Þegar Erlendur kom á staðinn var selurinn farinn af veginum en var fjær fljótinu. Fólkið hafði áhyggjur af því að hann reyndi að fara yfir veginn. 90 kílómetra hámarkshraði er á veginum.„Þá er hann búinn að fara ofan í læk sem er þarna rétt hjá. Með smá samvinnu þá fékkst hann til að fara í gegnum ræsi sem fór undir veginn og þar áleið
Varð ekki um sel – „Við urðum að fara í smá áhættuleik“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta