Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óttaðist um líf sitt þegar snjóflóð lentu á bíl hans

Davíð Pierre Milesi-Gaches lagði af stað frá Súðavík til Ísafjarðar rétt fyrir klukkan ellefu í gærmorgun. Hann mætti starfsmönnum Vegagerðarinnar sem sögðu að veginum yrði lokað eftir tuttugu mínútur. Á leiðinni lenti lítið snjóflóð á hægri framhlið bílsins.Davíð missti stjórn á bílnum og snjóflóðið ýtti honum yfir á rangan vegarhelming, næstum út af veginum og út í sjó. Rétt þegar hann var búinn að ná stjórn á bílnum lenti hann ofan á öðru stærra flóði.„Ég veit ekki hvort þetta var annað snjóflóð eða hvort það hafi verið þarna fyrir. En ég lenti ofan á snjóflóði sem var örugglega tveir metrar, allavega hærra en bíllinn. Og ég festist ofan á, sem var auðvitað betra en að verða fyrir því eða lenda undir því,“ segir Davíð.Davíð náði strax sambandi við lögreglu og beið þar til björgunarsveit
Óttaðist um líf sitt þegar snjóflóð lentu á bíl hans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta