Forsvarsmenn kvikmyndahátíðarinnar RIFF gagnrýna umfjöllun um hátíðina í fréttaskýringarþættinum Þetta helst á Rás 1 í byrjun mánaðar. Þau segja umfjöllunina gefa villandi og ranga mynd af starfseminni. GAGNRÝNDI STJÓRNUNARHÆTTI OG FJÁRMÁL RIFF Fréttaskýringaþátturinn Þetta helst á Rás 1 fjallaði um RIFF, Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, í byrjun mánaðar þar sem starfsmenn gagnrýna hátíðina og eigandann, Hrönn Marinósdóttur. Rætt var við Þorbjörgu Jóhannsdóttur, sem var starfsmannastjóri og framleiðandi kvikmyndahátíðarinnar í fimm mánuði fyrra.Í þættinum lýsti Þorbjörg reynslu sinni af hátíðinni sem „skelfilegri.“Gagnrýni Þorbjargar beinist einna helst að stjórnunarháttum og fjármálum RIFF, en hátíðin er að stóru leyti fjármögnuð með almannafé í gegnum íslenska ríkið og Reykjavík