Jóhann Páll Jóhannsson, ráðherra orkumála, telur nauðsynlegt að koma upp neyðarbirgðum eldsneytis hér á landi. Þetta var rætt á ríkisstjórnarfundi í dag.Engin birgðaskylda er hér á landi eins og er víða annars staðar. Jóhann Páll segir að Ísland ætti að eiga níutíu daga neyðarbirgðir, eins og tíðkast í nágrannalöndunum, og hann stefnir á að leggja fram frumvarp þess efnis á næsta löggjafarþingi.„Ísland er eina landið í Vestur-Evrópu sem ekki heldur neyðarbirgðir eldsneytis. Í dag erum við bara með rekstrarbirgðir sem duga í 20, í mesta lagi 50 daga, miðað við venjulega notkun,“ segir Jóhann Páll.„Við viljum ekki hafa þetta svona vegna þess að við vitum að skortur á eldsneyti myndi hafa bein áhrif á löggæslu, landhelgisgæslu, ýmsa neyðarþjónustu. Þannig að það er bara löngu tímabært að taka