Framboðslisti L-listans á Akureyri vegna bæjarstjórnarkosninga í vor liggur fyrir. Óðinn Svan Óðinsson fjölmiðlamaður er oddviti listans. Næst á lista eru þau Brynja Hlíf Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi og lífeindafræðingur, og Preben Jón Pétursson mjólkurtæknifræðingur. L-listinn fékk 18,7 prósent atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa í kosningunum fyrir fjórum árum. L-listinn er í meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum í bæjarstjórn.