Fagráð um velferð dýra komst ekki að samhljóma niðurstöðu um umsókn fyrirtækisins Ísteka um leyfi til blóðtöku úr fylfullum hryssum. Tveir fulltrúar veittu neikvæða umsögn, tveir jákvæða. Auk þess sagðist yfirdýralæknir, formaður nefndarinnar, ekki geta veitt jákvæða umsögn og sagði skýringar Ísteka á samfélagslegum ávinningi ekki fullnægjandi.