ASÍ hefur þungar áhyggjur af hækkunum á bensínverði og áhrifum þeirra á veðbólgu. Álagning olíufélaga hafi verið í sögulegu hámarki og afkoma þeirra sterk. Engar forsendur séu fyrir því að hleypa hækkunum á heimsmarkaðsverði að fullu út í verðlag og stjórnvöldum beri að sýna aðhald.