Frestur einstaklinga til að skila skattframtali vegna tekna í fyrra rennur út á miðnætti. Deildarstjóri einstaklingsdeildar hjá Skattinum segir um 230 þúsund einstaklinga þegar hafa skilað framtali og búist sé við að rúmlega 30 þúsund til viðbótar geri það í dag. Þótt fresturinn renni út á miðnætti verði hægt að skila framtalinu eftir það en mikilvægt sé að gera það sem allra fyrst. Sé skilað eftir framtalsfrest aukist áhætta á að Skatturinn áætli tekjur.