Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir samstarf Íslands og Bandaríkjanna á sviði öryggis-og varnarmála áfram gott, þrátt fyrir að ríkin greini á um viðskipti og tollamál. Hún segir málefni Grænlands einnig hafa komið til tals.Þetta kom fram eftir fundi ráðherra með bandarískum embættismönnum í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, í vikunni. RÆDDI AFSTÖÐU ÍSLANDS GAGNVART GRÆNLANDI OG ÚKRAÍNU Á meðan heimsókninni stóð ræddi ráðherra meðal annars við þingmenn úr röðum bæði Repúblikana og Demókrata, aðstoðarutanríkisviðskiptaráðherra, varaþjóðaröryggisráðgjafa og varavstríðsmálaráðherra.Að sögn Þorgerðar gafst henni kostur á því að gera grein fyrir afstöðu Íslands í ýmsum málaflokkum á meðan heimsókninni stóð.„Ég dró fram stuðning okkar við Úkraínu og prinsippafstöðu í Græn