Björgunarsveitir stóðu í ströngu í gær við að koma fólki til bjargar á Holtavörðuheiði þar sem það sat fast í bílum sínum. Alls voru 25 fluttir af heiðinni og flestum komið í skjól í Reykjaskóla, norðan heiðar, þar sem þeirra biðu uppbúin rúm. Einn var fluttur niður af heiðinni sunnan megin.Björgunarsveitir hófu aftur störf í morgun, að þessu sinni til að hjálpa til við að losa bíla sem skildir voru eftir í gærkvöld. Bílstjórar sem fengu inni í Reykjaskóla í nótt fengu því far aftur upp á Holtavörðuheiði í morgun til að sækja bíla sína. Allir fólksbílar eru komnir niður af heiðinni. Erfiðara reyndist að losa flutningabíl sem festist í Hæðarsteinsbrekku. Enginn bíll komst framhjá honum. Nú sér fyrir endann á því og er gert ráð fyrir að Holtavörðuheiði verði opnuð aftur fyrir umferð klukkan