Íslenski fluggeirinn hefur gengið í gegnum miklar sviptingar á undanförnum árum. Tæplega hálft ár er liðið frá því að Play hætti rekstri, og rúmlega 150 milljarða króna gjaldþrot WOW er landsmönnum enn í fersku minni. Niceair náði flugi í tæpt ár, frá 2022 til 2023, en áætlanir um að endurvekja það félag hafa ekki enn raungerst.