Áframhaldandi gæsluvarðhalds verður í dag krafist yfir þremur bræðrum og móður þeirra sem grunuð eru um sprengjutilræði við bandaríska sendiráðið í Ósló.Tæknimenn lögreglunnar að störfum við bandaríska sendiráðið.EPA / STIAN LYSBERG SOLUMÓslóarlögreglan birti fréttatilkynningu um meinta aðild móðurinnar í morgun og bræðurnir voru handteknir á miðvikudag. Mæðginin koma fyrir héraðsdómara í dag og hafa verið ákærð fyrir hryðjuverk, samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins.Einn bræðranna er sagður þegar hafa viðurkennt að hafa komið sprengjunni fyrir en hinir tveir neita sök. Verði þeir fundnir sekir gæti það kostað þá allt að 21 árs fangelsi. Óslóarlögregla hefur sagt bræðurna norska ríkisborgara sem eiga ættir að rekja til Íraks.