Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Úkraína og Rúmenía undirrita samkomulag um drónaframleiðslu

Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, og Nicușor Dan, forseti Rúmeníu.EPA / Robert GhementStjórnvöld í Úkraínu og Rúmeníu hafa náð samkomulagi um að hefja drónaframleiðslu í Rúmeníu. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, og Nicușor Dan, forseti Rúmeníu, undirrituðu samkomulag þess efnis í Búkarest, höfuðborg Rúmeníu, í gær. Norska ríkisútvarpið NRK greinir frá.Drónarnir verða framleiddir í Rúmeníu með úkraínsku hugviti og sérfærðiþekkingu og verkefnið er styrkt af varnarmálaverkefni Evrópusambandsins sem kallast Öryggi fyrir Evrópu. Forsetarnir undirrituðu einnig orkusamning sem felur í sér aukið raforkuöruggi milli landanna. Þá ræddu þeir einnig mögulegt samstarf í framleiðslu á olíu og gasi í Svartahafi.
Úkraína og Rúmenía undirrita samkomulag um drónaframleiðslu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta