Björgunaraðgerðir eru hafnar eftir að bandarísk herflugvél sem ætlað var að flytja eldsneyti fórst í Írak. Þetta kemur fram í tilkynningu sem yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Miðausturlöndum sendi frá sér í dag. Þar greinir einnig frá því að tvær herflugvélar hafi átt hlut að máli en að önnur þeirra hafi lent heilu og höldnu á meðan hin fórst í vesturhluta Íraks.