Karlmaður hefur verið dæmdur til tæplega þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðgun sem hann tók upp myndskeið af og braut þannig gegn kynferðislegri friðhelgi. Brotaþoli var kærasta mannsins þegar brotin áttu sér stað. Meðal lykilsönnunargagna var mæling á ástandi fólksins sem lenti í harkalegum árekstri skömmu eftir að nauðgunin átti sér stað.