Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Árásarmaður felldur eftir að hafa gert árás á samkomuhús gyðinga

Árásarmaður er látinn eftir að hann keyrði bíl sínum inn í samkomuhús gyðinga í bænum West Bloomfield í Michigan-fylki í Bandaríkjunum. Lögreglan í Oakland sagði að maðurinn hefði keyrt bíl sínum inn í húsið og keyrt niður gang áður en eldur kviknaði í bílnum. Í samkomuhúsinu er einnig leikskóli og fjölskyldumiðstöð Öryggisverðir í samkomuhúsinu skutu á manninn eftir að árásin hófst. Einn öryggisvörður slasaðist eftir að hafa orðið fyrir bílnum. Engir aðrir slösuðust í árásinni. Fréttamiðillinn CNN segir að mikið magn sprengiefnis hafi fundist í bílnum eftir að slökkt var í honum. Það hefur þó ekki verið staðfest af öðrum fréttamiðlum. Frá vettvangi í West Bloomfied í Michigan fylki í Bandaríkjunum.EPA / SYLVIA JARRIS
Árásarmaður felldur eftir að hafa gert árás á samkomuhús gyðinga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta