Skipuleggjendur árlegs bókamarkaðar Félags íslenskra bókaútgefenda gleðjast yfir metsölu.Yfir 105 þúsund bækur hafa selst á markaðinum, sem lýkur á sunnudag.Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, vonar að 117 þúsund bækur seljist áður en markaðinum lýkur.Bókamarkaðurinn er í húsnæði Garðheima, í Álfabakka, og í ár hafa barnabækur verið vinsælastar.55% af seldum bókum á markaðinum eru barnabækur og hlutfallið hefur aldrei verið hærra.