Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

MR slær ríkjandi meistara úr keppni eftir æsispennandi viðureign

Menntaskólinn í Reykjavík sigraði Menntaskólann við Hamrahlíð með 39 stigum gegn 32 í átta liða úrslitum Gettu betur í kvöld, þar með eru ríkjandi handhafar hljóðnemans úr keppni.Lið Menntaskólans í Reykjavík átti öfluga endurkomu eftir að hafa verið undir lengst af keppninni. Í tíundu bjölluspurningu náði MR forystu í fyrsta sinn í viðureigninni. Liðið hélt þeirri forystu og lét hana ekki af hendi það sem eftir lifði keppninnar.Menntaskólinn við Hamrahlíð hefur sigrað keppnina undanfarin tvö ár, alls hefur skólinn sigrað þrisvar sinnum. Menntaskólinn í Reykjavík sigraði keppnina seinast árið 2023 og er hann sá skóli sem hefur sigrað keppnina langoftast, alls 26 sinnum.Miðgarðsormurinn fylgdi stuðningsmönnum MH í áhorfendasal, ormurinn er um 90 metrar að lengd.Í næstu viku mætir Fjölbrauta
MR slær ríkjandi meistara úr keppni eftir æsispennandi viðureign

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta