Lögreglan á Vestfjörðum hefur tilkynnt að Eyrarhlíð, veginum á milli Hnífsdals og Ísafjarðar, verði lokað klukkan 22:30 vegna veðurs og aðstæðna. Í tilkynningu lögreglunnar segir að staðan verði endurmetin í fyrramálið og frekari upplýsingar veittar þá. Flateyrarvegi var einnig lokað klukkan 20:00 í kvöld vegna aukinnar snjóflóðahættu. Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar er reiknað með að færð spillist frá Snæfellsnesi að Tröllaskaga en einnig verður hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrenglsum í nótt.