Ráðamenn í Tjörneshreppi hafa ekki enn ákveðið hvað verður gert við tvö hundruð fjörutíu og átta millljónir frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Oddviti segir margt til skoðunar, en helst hefðu þau viljað skila peningunum.Töluvert hefur verið fjallað um fjárhagsvandræði Norðurþings frá því að slökkt var á kísilvinnslu PCC á Bakka. Frá Bakka sést yfir til nágrannanna í Tjörneshreppi, þar sem fimmtíu og þrír voru skráðir til heimilis í upphafi árs. Þar eru fjárhagsvandræðin engin, þvert á móti því þar ræða bæjarbúar hvað eigi að gera við tæplega 250 milljónir króna.Jöfnunarsjóður greiddi sveitarfélögum árlega svokallað fólksfækkunarframlag, þar sem hafði verið fækkun íbúa þrjú ár á undan.Reglunum var nýverið breytt. Oft hafa þessir útreikningar orðið til þess að nokkur sveitarfélög hafa skipt þe