Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í utanríkismálanefnd segja utanríkisráðherra ekki hafa staðið rétt að fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna að ESB. Ráðherra segir að þingmenn hafi vitað að málið yrði á dagskrá. Tekist var á um hvort utanríkisráðherra hefði staðið rétt að undirbúningi þjóðaratkvæðagreiðslunnar á fundi nefndarinnar í dag.„Ég óskaði eftir því að utanríkisráðherra kæmi á fund nefndarinnar áður en umræðan hæfist í þingsal til að eiga orðastað við nefndina. Við því var ekki orðið,“ segir Diljá Mist Einarsdóttir sem á sæti í utanríkismálanefnd. ÓSAMMÁLA AÐ LÖGBUNDIÐ SAMRÁÐ ÞURFI TIL Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra þáði svo boð á fund utanríkismálanefndar í dag. „Í fyrsta lagi er ég ósammála því að þetta sé lögbundið samráð áður en maður