Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar þar sem á milli 20 og 40 eru fastir í bílum sem telja á annan tug.Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að björgunaraðgerðir standi enn yfir.Í skilaboðum frá Landsbjörgu segir að þó nokkuð hafi verið um það í dag að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína.Á Súðavík hefur björgunarsveitin Kofri farið í nokkur verkefni bæði innan bæjar en líka inni í Ísafjarðardjúpi.Á Klettshálsi voru ferðalangar í að minnsta kosti 2 bílum í vandræðum og fóru Björgunarsveitin Heimamenn frá Reykhólum og Björgunarsveitin Lómfelli á Brjánslæk þeim til aðstoðar.Holtavörðuheiðinni var lokað fyrir um tveimur tímum vegna veðuraðstæðna.Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar er reikna