Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga, hefur starfað við skólann í 20 ár. Rætt var við Hugrúnu í útvarpsþættinum Víðsvegar á Rás 1, en í þættinum var fjallað um tónlistarlífið á svæðinu.Kennslustaðir skólans eru bæði á Blönduósi og á Skagaströnd. Á Blönduósi er kennt á þremur stöðum og kennararnir fara á milli staða. Hugrún segir kennarhópinn því á miklu flakki. > „Við hittumst lítið, sem verður til þess að við erum svolítið einangruð alla daga. Það er kannski það sem fólkið mitt hefur talað mest um og finnst erfiðast við starfið,“ segir hún. „Ég er kannski að fara eitthvert og þá mæti ég einhverjum öðrum kennara sem er að fara á staðinn sem ég var á. Við getum ekki haldið hópinn í starfi.“ Hugrún segir að það vanti tónlistarkennara á landsbyggðinni, s