Utanríkisráðherra telur ákvörðun Íslands um að taka þátt í hópmálsókn Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag ekki eiga eftir að hafa áhrif á samskipti þjóðanna. Formaður Miðflokksins segir ákvörðunina vanhugsaða. GETUM BEITT RÖDD OKKAR Á ÁKVEÐNUM SVIÐUM Íslensk stjórnvöld ákváðu að taka þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag. Með ákvörðuninni tekur Ísland þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum í fyrsta sinn.Suður-Afríka fer fram á að Ísrael verði dæmt fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza, sem brjóti í bága við hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna.„Það er einfaldlega verið að standa með mannréttindum,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.Ísland er aðili að hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna sem fjallar um skyldur ríkja ti