Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Holtavörðuheiðar vegna á annan tugs ferðalanga sem eru í að minnsta kosti fimm föstum bílum á heiðinni. Þó nokkuð hefur verið um það í dag að björgunarsveitir hafi aðstoðað ferðalanga sem hafi fest bíla sína.