Landsréttur staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm Wojciech Pawelczyk fyrir að hafa smyglað hingað til lands 5,2 lítrum af amfetamínbasa. Efnin komu til landsins í pósti frá Póllandi og höfðu verið falin í rörum sem voru hluti af ósamsettu barnarúmi.Smyglið uppgötvaðist þegar sendingin barst hingað til lands.Hann tjáði sig hvorki fyrir héraðsdómi né Landsrétti. Hann bar fyrir sig að brot hans hefði einskorðast við að taka á móti fíkniefnunum. Hann hefði hvorki skipulagt eða fjármagnað smyglið.Í niðurstöðu Landsréttar segir að ekkert hafi komið fram sem sýndi fram á annað en að Wojciech hefði staðið að innflutningi efnisins og framið þau brot sem hann var sakaður um.Upphaf málsins má rekja til þess að Wojciech hafði beðið konu sem var skráður viðtakandi sendingarinnar um að sækja hana á póst