Tilkynnt var í morgun að Síminn hygðist kaupa Sýn á 5,2 milljarða. Verði engar hindranir á veginum ættu þau að geta gengið í gegn á tólf mánuðum. Samkvæmt upplýsingum Spegilsins á þetta sé nokkurn aðdraganda, þreifingar hafa verið í töluverðan tíma en á síðustu mánuðum var allt sett á fullt skrið. NÝR TAKTUR SÍMANS EFTIR SÖLUNA Á MÍLU Kaupin eru háð öllum eðlilegum fyrirvörum en það vekur athygli að tilkynningin um fyrirhuguð kaup skuli hafa verið send út á þessum tímapunkti þegar margt er enn ófrágengið. Hvorki innan Símans né Sýnar eru áhyggjur af því að kaupin hljóti ekki blessun Samkeppniseftirlitsins enda Síminn hvorki að reka útvarpsstöðvar né frétta-vefsíðu.Síminn hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum; þegar félagið seldi ljósleiðarafélagið Mílu fyrir fjórum árum á tug