Þó nokkur snjóflóð hafa fallið á norðanverðum Vestfjörðum í dag en ekki er talin hætta í byggð sem stendur. Flateyrarvegi verður lokað klukkan 20 í kvöld vegna snjóflóðahættu. Lögreglan á Vestfjörðum segir að staðan á veginum verði endurmetin í fyrramálið.