Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir meiriháttar líkamsárás

Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði karlmann í dag í fjögurra vikna áframhaldandi gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meiriháttar líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í síðustu viku. Er varðhaldið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna og síbrotagæslu.Tilkynning um meiriháttar líkamsárás barst lögreglu seint 4. mars. Fórnarlambið er karlmaður á fertugsaldri. Hann var fluttur á slysadeild með talsverða áverka en hefur verið útskrifaður. Fjórir voru handteknir, og tveir þeirra úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald.Ekki var farið fram á framlengt gæsluvarðhald yfir hinum manninum, en hann var færður í afplánun vegna eldri dóms.
Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir meiriháttar líkamsárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta