Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, segir úttekt Viðskiptaráðs á heilsugæslum á höfuðborgarsvæðinu ekki endurspegla raunstöðu heilbrigðisþjónustu í dag.Hún segir úttektina byggða á gamalli þjónustukönnun sem taki ekki mið af breytingum sem orðið hafa á starfsemi heilsugæslunnar.Úttekt Viðskiptaráðs snýr að umgjörð og árangri í heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins. Samkvæmt henni draga ójöfn rekstrarskilyrði, lítil samkeppni og skakkir hvatar úr afköstum sem leiðir af sér langa bið og lakari þjónustu. Þar segir meðal annars að bið eftir heimilislækni sé að jafnaði 27 dagar ef miðað sé við næsta lausa almenna tíma hjá heimilislækni. „Við fögnum því náttúrulega alltaf þegar fólk hefur áhuga á rekstri heilbrigðiskerfisins. En þetta tekur ekki tillit til h