Þrjú snjóflóð hafa fallið fyrir ofan Flateyri í dag. Tvö snjóflóðanna féllu niður að snjóflóðavörnum en ógnuðu ekki byggð að sögn Heiðar Þórisdóttur, sérfræðings á snjóflóðavakt Veðurstofu Íslands. Lítið flóð féll á veginn um Spilli í Súgandafirði en ógnaði ekki byggð.Fjöldi snjóflóða hefur fallið á veginn um Súðavíkurhlíð í dag og honum var lokað á tólfta tímanum. Ekki er gert ráð fyrir að vegurinn opni í dag.Samkvæmt upplýsingum frá Braga Þór Thoroddsen, sveitarstjóra Súðavíkurhrepps, komst einn gestur í þorpinu ekki leiðar sinnar.Hættustigi hefur verið lýst yfir vegna snjóflóðahættu á Flateyrarvegi. Veginum verður lokað klukkan átta í kvöld.Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Ísafjarðar og Hnífsdals, er opinn en ef veðurspá gengur eftir má búast við að honum geti verið lokað þegar líður á dagi