Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, gegn Þjóðkirkjunni. Hann fór fram á skaðabætur eftir að prestakall hans var lagt niður árið 2019 og um leið embætti hans. Landsréttur sýknaði kirkjuna af kröfum Kristins í nóvember.