Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sveitarstjórnarmenn og bæjarstjórar verði skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína

Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verða sett. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum. Þá eiga siðareglur sveitarstjórna líka að ná yfir bæjar- og sveitarstjóra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í frumvarpi innviðaráðherra, Eyjólfs Ármannssonar, til sveitarstjórnarlaga sem hann mælti fyrir á Alþingi í síðustu viku.Björn Ingi Óskarsson, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu, er einn af höfundum frumvarpsins. Hann segir um þessar breytingar: „Þetta er í rauninni breyting sem hefur verið til tals í svolítið langan tíma. Stærri sveitarfélögin hafa nú þegar sett sér þessar reglur. Þetta er hluti af því að
Sveitarstjórnarmenn og bæjarstjórar verði skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta