Stjórn Félagsbústaða kveðst sammála því áliti verkefnahóps um sjálfbærni í rekstri Félagsbústaða að æskilegt sé að lántaka við íbúðakaup lækki og að fundinn verði grundvöllur til þess að sjóðsstreymi íbúða verði ætíð jákvætt. Þannig ætti að skapast traustari grunnur fyrir sjálfbæran rekstur og um leið stækkun eignasafnsins svo að mæta megi eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði.