Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

16 ára Svíi fékk 16 ára dóm

16 ára gamall Svíi var í dag sakfelldur í Kaupmannahöfn fyrir að leggja á ráðin um morð.Kviðdómi í héraðsdómi Kaupmannahafnar þótti sannað að pilturinn hafi tekið þátt í að skipuleggja ýmiss konar ódæði til að skapa úlfúð milli tveggja danskra glæpahópa, Unknown Team og Loyal to Familia. Hann var 15 ára gamall þegar brotin voru framin, en ætlunin var að skjóta menn til bana í Amager-hverfi og Nørrebro, og þá var handsprengja sprengd í sjoppu í Østerbro. Engan sakaði þó. HARÐSVÍRAÐUR GLÆPAMAÐUR INNI VIÐ BEINIÐ Í frétt DR, danska ríkisútvarpsins, er haft eftir saksóknara að undir barnslegu yfirbragði leyndist harðvíraður glæpamaður.Pilturinn ólst upp í Svíþjóð, en bjó á Alicante á Spáni þar sem hann stundaði iðju sína undir dulnefnunum Mr. Killer og The Godfather. Hann var handtekinn þar
16 ára Svíi fékk 16 ára dóm

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta