Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bindur vonir við að Síminn ætli sér stóra hluti á fjölmiðlamarkaði

Formaður Blaðamannafélags Íslands bindur vonir við að Síminn ætli sér stóra hluti á fjölmiðlamarkaði með fyrirhuguðum kaupum á miðlum Sýnar. Neikvætt væri fyrir samfélagið að missa sjónvarpsfréttir Sýnar, ef svo færi, og misskilningur sé að hugsa um sjónvarpsfréttir sem barn síns tíma. BINDUR VONIR VIÐ AÐ SÍMINN ÆTLI AÐ EFLA FRÉTTASTOFUNA Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, segir fyrirhuguð kaup Símans á miðlum Sýnar stór tíðindi. „Þarna er um að ræða annan af tveimur stærstu fjölmiðlum landsins og rótgróin fréttastofa sem á sess í hjörtum landsmanna og sinnir gríðarlega mikilvægu almannaþjónustuhlutverki, að veita almenningi upplýsingar og fréttir.“Fréttastofa Sýnar sé auk þess eina fréttastofa landsins, fyrir utan RÚV, sem sé með sjónvarpsfréttir.Sala Sýnar
Bindur vonir við að Síminn ætli sér stóra hluti á fjölmiðlamarkaði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta