Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

FA vill ekki að akreinum og bílastæðum verði fækkað

Félag atvinnurekenda leggst gegn því að akreinum fyrir bíla verði fækkað á Suðurlandsbraut samhliða því að Borgarlína verði lögð eftir götunni. Það vill líka að bílastæðum við götuna verði fækkað minna en til stendur eða að bæta fyrir slíka fækkun með því að byggja bílastæðahús við nýja Þjóðarhöll í Laugardal. Þetta kemur fram í umsögn félagsins til umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar. Þar segir að Suðurlandsbraut og Múlahverfi séu eitt helsta verslunar- og þjónustusvæði Reykjavíkur með á annað þúsund fyrirtæki, 5.500 starfsmenn hið minnsta og 400 milljarða króna veltu. Félagið lýsir stuðningi við áform um eflingu almenningssamgangna, þar á meðal Borgarlínu, en segir borgina hafa verið of stífa við útfærslu Borgarlínu um Suðurlandsbraut.„Að mati félagsins verða borgaryfirvöld að vera
FA vill ekki að akreinum og bílastæðum verði fækkað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta