Ísland tekur þátt í efnislegu máli fyrir dómstólnum í fyrsta sinn. Suður-Afríka fer fram á að Ísrael verði dæmt fyrir framgöngu sína í stríðinu á Gaza sem brjóti í bága við hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna.Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, er sérfræðingur í þjóðarétti. Hún ræddi þýðingu þessa fyrir Ísland í hádegisfréttum RÚV.„Ég held að þetta hafi mikla þýðingu fyrir íslensk stjórnvöld, fyrir Ísland sem smáríki, að taka þátt í framfylgd alþjóðalaga með þessum hætti. Ég held að þetta hafi líka virðisauka fyrir málið, að fá greinargerð frá Íslandi.“Ísland varð sautjánda ríkið til að taka þátt í málsókninni. Þá vaknar spurningin um hvort það skipti máli hversu mörg og hvaða ríki taka þátt. Þórdís segir að það sé ný þróun að ríki taki þátt í málaferlum með þ