Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

IEA heimilar stærstu losun olíuforða í sögu stofnunarinnar

Alþjóða orkumálastofnunin heimilaði í dag stærstu losun á olíuforða í sögu sinni til að draga úr olíuverðhækkunum vegna árása Bandaríkjanna og Ísrael á Íran. 400 milljón tunnum af olíu verður hleypt á markað úr varasjóðum.Tillagan var samþykkt af öllum 32 aðildarlöndum stofnunarinnar og samsvarar þetta um þriðjungi af öllum þeim varasjóðum sem stofnunin hefur aðgang að.Þetta er meira en tvöfalt það magn sem hleypt var úr varasjóðum árið 2022 eftir að Rússland gerði innrás í Úkraínu. Þá var 182 milljón tunnum hleypt úr varasjóðum.Olían verður seld til aðildarríkja samkvæmt aðstæðum þeirra. Ekkert G7-ríkjanna hefur enn tilkynnt skort á olíu en heimsmarkaðsverð hefur sveiflast mikið eftir að stríðið í Íran hófst.Um 15 milljón tunnur af olíu safnast fyrir daglega við Hormússund sem lokað er ef
IEA heimilar stærstu losun olíuforða í sögu stofnunarinnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta