RÚV / Jóhannes JónssonVegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi í Súðavíkurhlíð vegna snjóflóðahættu. Spáð er hríðarveðri næstu daga. Gul viðvörun tekur gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi Vestra á morgun og er viðvörunin í gildi fram til föstudagsmorguns.Snjókoma eða skafrenningur verður á norðanverðu landinu á morgun, einkum norðvestantil, slydda við norðausturströndina en úrkomulítið sunnan heiða.Hægt er að fylgjast með færðum á vegum á vef Vegagerðarinnar.