Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þessi hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin 2026

Íslensku myndlistarverðlaunin voru afhent í níunda sinn í kvöld við hátíðlega athöfn í Austurbæjarbíói. Myndlistarráð stendur að verðlaununum sem hafa það að meginmarkmiði að vekja athygli á því sem vel var gert á sviði myndlistar á liðnu ári.Í fréttatilkynningu er mikil gróska sögð hafa einkennt myndlist á Íslandi árið 2025 eins og endranær. Sköpunarkrafturinn beinist ekki aðeins að sköpun listaverkanna heldur sé myndlistarfólk með eindæmum lunkið við að framkalla ýmsa töfra þrátt fyrir þær þröngu aðstæður og skort á fjármagni sem sé viðvarandi í stétt myndlistarfólks. Ungt listafólk takist á við knýjandi spurningar um samtímann og eftirtektarvert þykir hve margir staðir á landsbyggðinni hafa náð að festa sig í sessi sem vettvangur myndlistar í fremstu röð. MYNDLISTARMAÐUR ÁRSINS – FINN
Þessi hlutu Íslensku myndlistarverðlaunin 2026

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta