Atvinnuleysi í Norðurþingi hefur aukist um meira en áttatíu prósent milli ára. Enn er óvissa um framtíð kísilversins á Bakka, en forstjóri PCC segir markaðsaðstæður mjög erfiðar.Í Norðurþingi hefur atvinnuleysi verið lítið undanfarin ár en tók kipp síðasta sumar og hefur aukist um 85% á milli ára.159 voru skráðir atvinnulausir í Norðurþingi í janúar, þar sem búa um 3000 manns. Formaður Framsýnar segir stöðuna alvarlegri en tölurnar gefa til kynna, margir séu fluttir burt og atvinnulausum hafi líka fjölgað í nágrannasveitarfélaginu Þingeyjarsveit.Atvinnulausum hefur fjölgað á Húsavík og tugir flutt burt úr bænum, eftir að vinnsla var stöðvuð í kísilveri PCC. Formanni stéttarfélags í Þingeyjarsýslum þykir ráðamenn áhugalausir um stöðuna. > „Þetta er miklu stærra, vegna þess að þetta eru bar