Hnúfubak rak á land í Kjálfafirði á austanverðum Vestfjörðum, hvalurinn var dauður þegar komið var að honum. Greint er frá hvalrekanum í Bæjarins bestu, þar er sagt að um fullorðið dýr sé að ræða. Samkvæmt gátlista MAST um förgun hvalshræs er fyrsti valkostur að leyfa hræinu að vera á sínum stað og leyfa náttúrunni að hafa sinn gang. Ef hræið veldur hins vegar miklum ama, mengun eða slyshættu, eru aðrar förgunaraðgerðir að urða hræið eða sökkva því á hafi úti Þá segir einnig að ekki sé unnt að þvinga landeigenda til þess að fjarlægja hvalreka á eigin kostnað og verði því opinberir aðilar að sinna slíkum málum.RÚV / AðsendRÚV / Aðsend