„Ég upplifi stundum að ég sé að reyna að halda á tímanum en hann lekur bara úr höndunum á mér,“ segir tónlistarmaðurinn Gauti Þeyr, betur þekktur sem Emmsjé Gauti. Síðastliðin tíu ár hefur hann verið gríðarlega vinsæll hérlendis og troðið upp á hinum ýmsu skemmtunum. Hann stendur á tímamótum og ræddi við blaðamann um þau, lífið og listina.