Þrír bræður, allir á þrítugsaldri, hafa verið handteknir vegna gruns um að hafa sprengt sprengju við bandaríska sendiráðið í Ósló aðfaranótt sunnudags.Samkvæmt Óslóarlögreglunni eru bræðurnir allir norskir ríkisborgarar sem eiga ættir að rekja til Íraks og eru allir þrír búsettir í höfuðborginni. Þeir hafa ekki áður komið við sögu lögreglu.Minni háttar skemmdir urðu á húsnæði sendiráðsins en engan sakaði við sprenginguna. Rannsókn lögreglu bendi til þess að sprengjan hafi verið heimatilbúin.Lögreglunni hefur borist talsvert magn myndefnis eftir sprenginguna. Óslóarlögreglan birti á mánudag mynd af manni úr eftirlitsmyndavél sem grunaður var um að hafa komið sprengjunni fyrir. Grunar lögreglu að það sé einn bræðranna en hinir tveir hafi aðstoðað.Christian Hatlo saksóknari segir í samtali vi