Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þurfa að eiga þetta við eigin samvisku

Þriggja manna óháður borgarstjórnarflokkur fyrrverandi Sjálfstæðisfólks sem gekk í Miðflokkinn tekur formlega til starfa á föstudaginn.Í flokknum verða borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir sem gengu í Miðflokkinn fyrir helgi og Helgi Áss Grétarsson fyrrverandi fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sem gekk í sama flokk í janúar.Þetta verður níundi flokkurinn í borgarstjórn og sá fjórði í minnihlutanum. ENGINN AÐ KREFJAST AÐ FÓLK STÍGI TIL HLIÐAR Sjálfstæðisflokkurinn fékk sex fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum 2022, en er með fjóra eftir þetta. Kjartan og Marta sitja hvort um sig í þremur ráðum á vegum borgarinnar, sem þau voru kjörin í sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins.Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur ekki gefið frét
Þurfa að eiga þetta við eigin samvisku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta