Evrópusambandið hefur hótað að draga úr fjárframlögum sínum til Feneyjatvíæringsins ef fulltrúum Rússa verður leyft að sýna á hátíðinni í ár. Rússar hafa ekki sýnt á tvíæringnum eftir að stríðið í Úkraínu hófst í febrúar 2022. Þjóðarskáli þeirra í Giardini stóð tómur á hátíðinni 2022 eftir að listamenn og sýningarstjóri hættu við þátttöku. Fyrir tveimur árum sýndi fulltrúi Bólivíu í skálanum.Listi yfir þátttakendur á næsta myndlistartvíæringi sem haldinn verður í sumar var birtur fyrr í þessum mánuði. Þar sést að Rússar ætla að snúa aftur í Giardini. Á fjórða tug listamanna kemur að framlagi þeirra í ár. Opnunardagur listahátíðarinnar er 9. maí og hún stendur fram til 22. nóvember. Fulltrúi Íslands í Feneyjum í ár er Ásta Fanney Sigurðardóttir. PÓLITÍSK ÁKVÖRÐUN ÍTALA Þetta hefur mætt m