Ríkissaksóknari segir ómögulegt að segja til um það hversu lengi þarf að bíða eftir niðurstöðu Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða, sem Hæstiréttur sendi aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar í dag. Sakborningarnir tveir voru fyrst handteknir fyrir þremur og hálfu ári. Þá segir hann erfitt að setja fram kröfu um þyngd refsingar, þar sem ekkert fordæmi sé fyrir ákæru fyrir hryðjuverk hér á landi. Hryðjuverk varða allt að ævilöngu fangelsi.