Úrelt gögn urðu til þess að Bandaríkin sprengdu stúlknaskóla í Íran í lok febrúar samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu rannsóknar Bandaríkjahers. Minnst 175 voru drepin, meirihlutinn nemendur í skólanum.New York Times fjallar um niðurstöðurnar sem eru aðeins til bráðabirgða og ekki opinberar enn. Samkvæmt þeim studdist Bandaríkjaher við úrelt gögn við loftárásir á borgina Minab 28. febrúar.Shajerah Tayyebeh-stúlknaskólinn stóð við byggingar íranska hersins og gervihnattamyndir sýna að skólinn hafði verið girtur af í að minnsta kosti níu ár - en samkvæmt úreltu gögnunum var hann hluti af bækistöðvum hersins. Írönsk stjórnvöld segja 175 hafa verið drepin í árásinni, að mestu nemendur í skólanum sem voru stúlkur á aldrinum 7-12 ára. MÖRGUM SPURNINGUM ENN ÓSVARAÐ Heimildarmenn New York Times segj