Verktakar samfélagsmiðlafyrirtækisins META hafa aðgang að hráu myndefni frá notendum Ray-Ban snjallgleraugna. Efnið er ekki afmáð heldur birtist skýrt á skjám verktakanna.Þetta kemur fram í sameiginlegri umfjöllun Svenska Dagbladet og Göteborgs-Posten.Fyrirtækið SAMA er undirverktaki META í borginni Nairobi í Kenía. Starfsmenn þess ræddu við sænska blaðamenn undir nafnleynd.„Í sumum myndböndum getur maður séð einhvern á klósettinu eða að afklæða sig. Ég held að þau viti það ekki, annars væru þau ekki með kveikt á upptöku,“ sagði einn starfsmannanna við Svenska Dagbladet.Verktakarnir eru gagnaskrásetjarar (e. data annotators) sem taka á móti hráu efni og skrá það og flokka fyrir vélnámslíkön.Þegar Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri META, kynnti snjallgleraugun til leiks sagðist hann sj